ÍR-ingurinn Jón Gísli Ström æfir þessa dagana með Keflavík en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Jón Gísli hefur verið lykilmaður hjá ÍR og var valinn í lið ársins í 2. deild í sumar en Breiðholtsliðið hafnaði í þriðja sæti og mistókst að komast upp.
Þessi 21 árs sóknarmaður skoraði 13 mörk í 22 leikjum fyrir ÍR á liðnu tímabili.
Árið 2013 var hann hjá ÍBV en fékk fá tækifæri og lék aðeins þrjá leiki í Pepsi-deildinni.
Keflavík hafnaði í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar í ár.
Athugasemdir