Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi, hrósaði leikmönnum sínum í hástert eftir stórsigur liðsins á Schalke.
Chelsea sigraði Schalke með fimm mörkum gegn engu. John Terry, Willian, Didier Drogba og Ramires komust á blað en eitt af mörkum liðsins var sjálfsmark þýska varnarmannsins Jan Khirchoff.
Chelsea er komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar en Schalke eða Sporting mun fylgja enska liðinu.
,,Liðið spilaði frábærlega. Það að vinna 5-0 á útivelli í Meistaradeildinni er ekki eðlilegt og að vinna 5-0 í Þýskalandi er enn óeðlilegra," sagði Mourinho.
,,Frammistaðan var fullkomin og er mjög mjög sáttur með hana. Við erum með gott lið og auðvitað getum við alveg tapað og það kemur sá tími en akkurat núna þá er liðið að spila vel,"
Athugasemdir