Luis Suarez, framherji Barcelona á Spáni, skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið gegn APOEL í kvöld.
Suarez var ekki búinn að skora fyrir félagið fyrir leikinn í kvöld en hann kom sér á blað og var markið ekki af verri endanum.
Hann snéri af sér varnarmann APOEL áður en hann lagði boltann í netið.
Athugasemdir