Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 25. nóvember 2014 23:26
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Shakhtar átti að fá vítaspyrnu undir lokin
Michael Oliver var sprotadómari í kvöld
Michael Oliver var sprotadómari í kvöld
Mynd: Getty Images
Michael Oliver, dómari í ensku úrvalsdeildinni, sem var jafnframt sprotadómari á leik Shakhtar og Athletic Bilbao í Meistaradeild Evrópu í kvöld er ekkert sérlega vinsæll hjá úkraínska liðinu í augnablikinu en hann rændi liðið vítaspyrnu.

Shakhtar tapaði fyrir Athletic Bilbao með einu marki gegn engu í kvöld en Mikel San Jose skoraði sigurmarkið.

Úkraínska liðið vildi fá hendi undir lok leiksins er Balenziaga fékk boltann augljóslega í höndina á sér en Oliver sem var sprotadómari við mark Bilbao dæmdi ekkert. Shakhtar hefði líklega skorað úr skotinu en þurfti að sætta sig við tap í stað þess.

Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner