Sergio Aguero, framherji Manchester City á Englandi, var auðvitað hress eftir 3-2 sigur á Bayern München í Meistaradeild Evrópu í kvöld en liðið bauð uppá magnaða endurkomu.
Aguero skoraði öll þrjú mörk Man City í kvöld en það fyrsta kom úr vítaspyrnu eftir að Mehdi Benatia braut á honum.
Xabi Alonso jafnaði metin fyrir Bayern áður en Robert Lewandowski kom gestunum yfir en Aguero jafnaði metin undir lok síðari hálfleiks áður en hann skoraði sigurmarkið.
,,Ég er mjög ánægður. Þetta var mikilvægt fyrir okkur og núna verðum við að vinna næsta leik;" sagði Aguero.
Athugasemdir