Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. nóvember 2014 17:57
Magnús Már Einarsson
Heimild: Fhingar.net 
Þórarinn Ingi í FH (Staðfest)
Þórarinn Ingi Valdimarsson.
Þórarinn Ingi Valdimarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur keypt Þórarinn Inga Valdimarsson frá ÍBV en þetta kom fram á Fhingar.net nú rétt í þessu.

Þórarinn Ingi skrifaði undir fjögurra ára samning við FH.

FH hefur átt í viðræðum við ÍBV um kaup á leikmanninum og nú er allt klappað og klárt.

Þórarinn var í íslenska landsliðshópnum í fyrstu þremur leikjum undankeppni EM en kom ekki við sögu í leikjunum.

Þessi 24 ára gamli leikmaður kom aftur til ÍBV í júlí eftir að hafa verið á láni hjá Sarpsborg í Noregi í eitt og hálft ár.

Í samtali við FHingar.net sagði Guðlaugur Baldursson aðstoðarþjálfari FH að menn þar á bæ væru gríðarlega ánægðir með komu Þórarins.
Athugasemdir
banner
banner
banner