TalkSport á Bretlandseyjum bauð uppá umdeildan topp tíu lista í dag en þar eru tíu ofmetnustu leikmenn heims teknir saman og má sjá þar nokkur nöfn sem margir myndu furða sig á.
Það eru nöfn á þessum lista sem ætti að koma engum á óvart en þar má finna leikmenn á borð við Chris Smalling og Hatem Ben Arfa.
Óvæntasta nafnið á þessum lista er líklega Marco Reus sem leikur með Borussia Dortmund en hann er talinn vera einn af bestu knattspyrnumönnum heims.
Hægt er að sjá myndband Talksport hér fyrir neðan og alla tíu leikmennina sem eru á listanum.
Athugasemdir