Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. nóvember 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Bale getur ekki ekið Lamborghini
Mynd: Getty Images
Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, þarf að selja glæsilega Lamborghini bifreið sína þar sem hún ýtir undir hættu á meiðslum aftan í læri.

Bale hefur eytt yfir 60 milljónum króna í glæsilega Lamborghini bifreið en nú þarf hann að selja hana.

Landi hans, Ryan Giggs, lenti í sömu vandræðum á ferlinum við akstur á Lamborghini bifreiðum.

Bifreiðarnar gera það að verkum að leikmenn eiga meiri hættu á að meiðast aftan í læri.

„Lamborghini eru verstir, margir fótboltamenn finna það," sagði heimildarmaður The Sun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner