Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. nóvember 2015 10:00
Magnús Már Einarsson
Gerrard æfir með Liverpool
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard hefur staðfest að hann muni hefja æfingar með sínu gamla félagi Liverpool í næstu viku.

Hinn 35 ára gamli Gerrard fór frá Liverpool til LA Galaxy í sumar en frí er í MLS deildinni í Bandaríkjunum næstu mánuðina.

Gerrard ætlar að nýta tækifærið og æfa með Liverpool í nokkrar vikur undir stjórn Jurgen Klopp.

„Ég hlakka til að sjá hvernig hann er og læra nokkra hluti af honum," sagði Gerrard.

Gerrard hefur hins vegar útilokað að ganga til liðs við Liverpool á nýjan leik á stuttum lánssamning.
Athugasemdir
banner
banner
banner