Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. nóvember 2015 14:13
Elvar Geir Magnússon
Grealish bannað að æfa með aðalliðinu
Grealish kominn í skammarkrókinn.
Grealish kominn í skammarkrókinn.
Mynd: Getty Images
Remi Garde, knattspyrnustjóri Aston Villa, refsað Jack Grealish fyrir hegðun hans um síðustu helgi. Grealish fær ekki að æfa með aðalliði Villa heldur þarf að æfa með unglingaliði félagsins.

Þessi tvítugi leikmaður skellti sér á djammið eftir 4-0 tap gegn Everton eins og við greindum frá í gær. Villa vermir botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og er reiði innan félagsins með hegðun leikmannsins.

Óvíst er hvort Grealish spili heimaleik gegn Watford um komandi helgi en ekki er vitað hve lengi hann þarf að æfa með unglingaliðinu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Grealish ratar á slúðursíðurnar fyrir djammlíferni sitt en í sumar var hann myndaður áfengisdauður á götum úti á Tenerife.
Athugasemdir
banner
banner