Maicon, hægri bakvörður Roma, segir liðið hafa verið heppið að tapa bara 6-1 gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi.
Barcelona lék glimrandi vel í gær og áttu Ítalarnir aldrei séns.
Barcelona lék glimrandi vel í gær og áttu Ítalarnir aldrei séns.
„Við reyndum að spila okkar fótbolta en við náðum ekki að gera neitt í kvöld. Það er ekki hægt að ráða við Barcelona þegar liðið er í þessum ham," segir Maicon.
„Við vorum heppnir að tapa bara 6-1. Okkar markmið fyrir leiktíðna breytast ekki en við verðum að spila öðruvísi en í kvöld."
„Það gekk ekkert upp, ekkert, 0%," sagði Brasilíumaðurinn.
Athugasemdir