Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. nóvember 2015 19:30
Magnús Már Einarsson
Szczesny: Vorum að spila gegn liði frá annarri plánetu
Mynd: Getty Images
Wojciech Szczesny, markvörður Roma, segist ekki geta annað en hrósað Barcelona í hástert eftir leik liðanna í gær.

Szczesny fékk sex mörk á sig á Nou Camp í gærkvöldi en Barcelona sigraði 6-1.

„Það var fallegt að sjá þetta því að við vorum að spila gegn liði frá annarri plánetu," sagði Szczesny.

„Ég var í markinu hjá Roma en á sama tíma var ég hrifinn af því sem ég sá hjá Barcelona."

„Þeir voru fáránlega góðir. Eins erfitt og það er að tapa 6-1 þá var fallegt að horfa á þetta."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner