Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 25. nóvember 2016 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sports.Yahoo 
Griezmann: Ég hata Ronaldo ekki
Ronaldo og Griezmann
Ronaldo og Griezmann
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann, leikmaður Atletico Madrid, segist hafa ekkert annað en virðingu fyrir einum besta leikmanni heims, Portúgalanum Cristiano Ronaldo.

Við greindum frá því fyrr í vikunni þegar Griezmann labbaði upp að Ronaldo eftir EM og sagðist hata hann. Griezmann segist þó ekki hafa meint illa með þessu.

„Ronaldo var einu sinni nágranni minn og hann labbaði fram hjá húsinu mínu á hverjum degi," sagði Griezmann við L'Equipe. „Við heilsuðumst alltaf."

„Við hittumst í sumar á veitingastað á Miami. Ég var í fríi með kærustunni minni og við rákumst fyrir tilviljun á Ronaldo. Ég fór upp að honum og óskaði honum til hamingju með sigurinn á bæði Evrópumótinu og í Meistaradeildinni."

„Ég grínaðist með það að ég hataði hann vegna þess að ég var enn svekktur eftir úrslitin á EM. Ég ber mikla virðingu fyrir honum og ég hata hann ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner