Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 25. nóvember 2016 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sport Expressen 
Real Madrid leiðir kapphlaupið um „næsta Zlatan"
Þessi er talinn mjög efnilegur
Þessi er talinn mjög efnilegur
Mynd: Getty Images
Spænska stórveldið Real Madrid er mikið fyrir það að kaupa unga leikmenn sem eru taldir mjög efnilegir. Sá næsti í röðinni gæti verið sænski sóknarmaðurinn Alexander Isak, en þetta segir Sport Expressen.

Isak er talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu og hann hefur verið orðaður við fjöldamörg lið. Risarnir frá Spáni, Real Madrid, leiða núna kapphlaupið um hann.

Þessi strákur hefur skorað 13 mörk á tímabilinu fyrir AIK í Svíþjóð og það er hreint út sagt magnað þar sem hann er aðeins 17 ára gamall.

Honum hefur verið líkt við Zlatan Ibrahimovic, sóknarmann Manchester United, og talað hefur verið um það að hann sé bjartasta von Svíþjóðar, nú síðan Zlatan braust fram á sjónarsviðið.

AIK og Real Madrid hafa fundað nokkrum sinnum um framherjann, en hann hefur einnig verið orðaður við PSG og Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner