Marcelino, þjálfari Valencia, var á leið heim á aðfangadagskvöldi þegar hann klessti á villisvín.
Áreksturinn var nógu harkalegur til að senda spænska þjálfarann á spítala.
Áreksturinn var nógu harkalegur til að senda spænska þjálfarann á spítala.
Marcelino er 52 ára gamall og átti atvikið sér stað á milli Logrono og Bilbao í norðurhluta Spánar.
Þjálfarinn fékk að yfirgefa spítalann eftir snögga athugun og verður eflaust klár í slaginn þegar spænski boltinn tekur við sér á þrettándanum.
Athugasemdir