Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 26. janúar 2015 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gabriel fær atvinnuleyfi - Metinn á 15 milljónir
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur fengið atvinnuleyfi fyrir Gabriel Paulista, varnarmann Villarreal sem er á leið til Lundúna.

Miklar vonir eru bundnar við Gabriel og á hann að leysa miðvarðakrísu Arsenal þar sem bakverðir hafa oft þurft að sinna miðvarðarstöðunni á tímabilinu.

Gabriel er metinn á 15 milljónir punda en ekki er ljóst hversu mikið Arsenal mun greiða.

Joel Campbell, sóknarmaður Arsenal, fer til Villarreal á láni og mun vega eitthvað upp á móti kaupverði Gabriel sem getur einnig spilað sem bakvörður.

,,Hann er stór og snöggur og mun passa vel í enska boltann," sagði Wenger.
Athugasemdir
banner
banner
banner