Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. janúar 2015 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Gabriel gæti orðið leikmaður Arsenal í dag
Gabriel Paulista.
Gabriel Paulista.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, telur að félagið geti gengið frá kaupunum á varnarmanninum Gabriel Paulista í dag.

Brasilíumaðurinn mun koma til Arsenal frá Villarreal, en Wenger gaf það í skyn eftir 3-2 sigur Lundúnaliðsins gegn Brighton í enska bikarnum í gær að einungis formsatriði væri að fá skiptin í gegn.

,,Hann er öflugur varnarmaður sem getur líka spilað á köntunum. Hann er hávaxinn, hraður og sterkur og góður að tækla. Hann á mjög góða möguleika á að aðlagast enska boltanum," sagði Wenger.

,,Ég ber miklar vonir til hans og tel að hann verði góð viðbót við liðið. Þetta gæti orðið klárt áður en dregið verður í næstu umferð bikarsins á morgun (í dag)."

Athugasemdir
banner
banner