Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. febrúar 2015 15:30
Elvar Geir Magnússon
Busquets framlengir við Barcelona
Sergio Busquets.
Sergio Busquets.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Sergio Busquets mun á morgun skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Barcelona en félagið hefur tilkynnt þetta.

Busquets vann HM með Spáni en hann hefur fjórum sinnum unnið spænska meistaratitilinn síðan hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Börsunga 2008.

Busquets er 26 ára og hefur spilað 313 leiki fyrir Barcelona.

Hann vann Meistaradeildina með liðinu 2009 og 2011 en nýr samningur verður undirritaður um hádegið á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner