Stjórn KSÍ fundaði í kvöld í fyrsta skipti að loknu ársþingi.
Þar var ákveðið að Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, muni gegna starfi framkvæmdastjóra KSÍ tímabundið, þar til annað verður ákveðið.
Þórir Hákonarson lætur af störfum á morgun eftir að hafa verið framkvæmdastjóri síðan árið 2007.
Klara hefur starfað lengi hjá KSÍ og komið að hinum ýmsu verkefnum.

Klöru er margt til lista lagt en hún var meðal annars valin kajak kona ársins á síðasta ári.
Athugasemdir