Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. febrúar 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Kristinn vallarstjóri ársins þriðja árið í röð
Mynd: Getty Images
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri á Laugardalsvelli, hefur verið valinn vallarstjóri ársins hjá samtökum Íþrótta og Golfvallarstarfsmanna á Íslandi (SÍGÍ).

Þetta er þriðja árið í röð sem Kristinn hlýtur þessi verðlaun og er hann vel að þeim kominn, enda er Laugardalsvöllur ávallt í frábæru ástandi.

Golfvallarstjóri ársins 2014 er Bjarni Þór Hannesson, vallarstjóri Golfklúbbsins Keilis.

,,Síðastliðinn vetur var virkilega erfiður bæði á knattspyrnuvöllum sem og á golfvöllum og alveg ljóst að Bjarni og Kristinn sem og fleiri vallarstjórar á völlum landsins unnu þrekvirki í því að koma sínum völlum í gott standi fyrir sumarið," segir í fréttatilkynningu frá SÍGÍ.

Athugasemdir
banner
banner