Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 26. febrúar 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lamela: Sigur í kvöld mikilvægari en úrslitaleikur gegn Chelsea
Lamela
Lamela
Mynd: Getty Images
Erik Lamela, leikmaður Tottenham, segir að sigur gegn Fiorentina í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar sé mikilvægari en úrslitaleikur deildabikarsins gegn Chelsea á sunnudaginn.

Spurs þarf að skora minnst eitt mark gegn Fiorentina eftir að Ítalirnir skoruðu á White Hart Lane í 1-1 jafntefli.

,,Úrslitaleikurinn gegn Chelsea er ekki jafn mikilvægur og þessi í kvöld. Hvorn vil ég frekar vinna? Báða," sagði Lamela fyrir viðureign Spurs gegn Fiorentina í kvöld.

,,Fiorentina er með gott lið sem notar svipaðan leikstíl og við þannig að þetta verður opinn leikur.

,,Bæði lið munu spila til sigurs enda er þessi viðureign galopin eftir fyrri leikinn."

Athugasemdir
banner
banner
banner