Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 26. febrúar 2015 10:31
Elvar Geir Magnússon
Liverpool sagt hafa áhuga á Illarramendi
Asier Illarramendi er 24 ára.
Asier Illarramendi er 24 ára.
Mynd: Getty Images
Það bendir allt til þess að Asier Illarramendi yfirgefi Real Madrid í sumar en spænski miðjumaðurinn hefur ekki náð að festa sig í sessi síðan hann kom frá Real Sociedad sumarið 2013.

Spænska dagblaðið El Confidencial segir að Liverpool fylgist með gangi mála hjá þessum varnarsinnaða miðjumanni.

Athletic Bilbao hefur einnig áhuga á Illarramendi og reyndi að fá hann til sín í janúarglugganum. Þá vill Real Sociedad gjarnan fá hann til baka.

Talið er að möguleikar Liverpool á að fá hann velti mikið á því hvort liðið nái að tryggja sér Meistaradeildarsæti. El Confidencial segir Xabi Alonso hafa hvatt Illarramendi til að fara til Liverpool og telur hann leikmanninn henta leikstíl enska liðsins afar vel.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner