Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. febrúar 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rudi Garcia: Það er allt í húfi - Verðum að skora
Mynd: Getty Images
Rudi Garcia, þjálfari Roma, segir sýna menn þurfa að sína metnað þegar liðið heimsækir Feyenoord í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Roma gerði 1-1 jafntefli við hollenska liðið á heimavelli og þarf því að skora á útivelli þegar liðin mætast í kvöld.

,,Jafnteflið á heimavelli þýðir að við verðum að sækja og reyna að skora á útivelli þrátt fyrir gæðamiklar skyndisóknir Feyenoord," sagði Garcia í gær.

,,Það verður allt í húfi þegar við mætumst og við vitum að við þurfum að sýna mikinn metnað til að komast áfram.

,,Við þurfum að sýna sigurvilja og þora að taka áhættur. Ef við náum að halda boltanum jafn mikið og í síðustu leikjum verðum við að bæta nýtinguna."

Athugasemdir
banner
banner