Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. febrúar 2015 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Wenger: Þetta var sjálfsmorð
Mynd: Getty Images
Arsenal fékk Monaco í heimsókn á Emirates leikvanginn í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Monaco vann leikinn óvænt, 3-1, þökk sé skipulögðum varnarleik og markvissum skyndisóknum.

,,Það á einfaldlega ekki að gefa mörk eins og við gáfum í þessum leik," sagði Wenger.

,,Við klúðruðum færum og vorum í sjálfsmorðshug varnarlega."

Arsenal þarf að skora minnst þrjú mörk á gríðarlega erfiðum útivelli þar sem Monaco er með eina sterkustu vörn Evrópu.

,,Þetta var sjálfsmorð, í öðru og þriðja markinu. Þetta leit út eins og við hefðum misst stjórn á taugunum og hausnum. Hjartað tók yfir hausinn og það gengur ekki á þessu stigi."
Athugasemdir
banner
banner
banner