Sóknarmaðurinn Alfreð Finnbogason skoraði sitt fyrsta mark í La Liga á dögunum þegar hann innsiglaði sigur Real Sociedad. Alfreð er nú á fullu í undirbúningi með íslenska landsliðinu fyrir leik gegn Kasakstan hér í Astana.
„Maður hefur verið lengi að bíða eftir fyrsta markinu í deildinni og það var mikill léttir. Ég er mjög ánægður með það. Þegar maður er senter er tölfræðin skoðuð og mörkin," segir Alfreð sem hefur þurft að þola mikla bekkjarsetu.
„Þetta reynir á andlega. Það erfiðasta sem menn ganga í gegnum fyrir utan að vera meiddir er að vera ekki að spila. Maður hefur bara þurft að taka þessu af ró og fagmennsku."
Varðandi leikinn á laugardag segir Alfreð að Kasakar séu alls ekki með slæmt lið.
„Við ætlum ekki að nota neinar afsakanir. Við erum mættir hingað til að taka þrjú stig en þetta verður mikið þolinmæðisverk."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir