Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. mars 2015 13:00
Magnús Már Einarsson
Bjarki Pétursson í Fram (Staðfest)
Mynd: Fram
Fram hefur fengið markvörðinn Bjarka Pétursson í sínar raðir en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Bjarki er 22 ára gamall en hann spilaði með Vængjum Júpíters í fyrra.

Bjarki er uppalinn í Fjölni en var á mála hjá BÍ/Bolungarvík 2012-13.

,,Fram býður Bjarka velkominn til liðs við félagið," segir í tilkynningu frá Fram.

Hjá Fram mun Bjarki berjast við Sigmar Inga Sigurðarson um markvarðarstöðuna en hann kom frá Haukum í vetur.
Athugasemdir
banner