banner
   fim 26. mars 2015 06:00
Magnús Már Einarsson
Gunnar Valur í Vængi Júpíters (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn reyndi Gunnar Valur Gunnarsson hefur fengið félagaskipti yfir í Vængi Júpíters.

Hinn 33 ára gamli Gunnar Valur ákvað að leggja skóna á hilluna eftir síðasta tímabil með Fjölni.

Hann hefur nú ákveðið að draga fram skóna og spila með Vængjunum.

Gunnar Valur hefur leikið með Fjölni frá árinu 2003, að undanskildum sumrunum 2012 og 2013 er hann lék með KA, en hann á 244 deildar og bikarleiki að baki.

Vængir Júpíters eru úr Grafarvogi en þeir spila í 4. deildinni líkt og í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner