Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 26. mars 2015 20:00
Daníel Freyr Jónsson
Ipswich fær tvo frá Crystal Palace (Staðfest)
Zeki Fryers.
Zeki Fryers.
Mynd: Crystal Palace
Zeki Fryers og Jonny Williams eru gengnir í raðir Ipswich frá Crystal Palace á lánssamningi út þessa leiktíð.

Frá þessu var gengið í dag og munu leikmennirnir nú styrkja liðið sem er í mikilli baráttu um að komast upp úr Championship-deildina og í úrvalsdeildina.

Ipswich er í 6. sæti deildarinnar, en er einungis sex stigum frá Bournemouth sem vermir toppsætið.

Fryers hafði nýlega snúið aftur til Palace eftir að hafa spilað 10 leiki sem lánsmaður hjá Rotherham, á meðan Williams hefur í tvígang verið í láni hjá Ipswich.
Athugasemdir
banner
banner