Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. mars 2015 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Leynivopnið ekki með gegn Íslandi
Icelandair
Mynd: Getty Images
Alexander Merkel verður ekki með Kasökum þegar þeir taka á móti Íslendingum á laugardaginn.

Merkel var valinn í leikmannahóp Kasakstan fyrir leikinn en hann er meiddur og hefur auk þess ekki enn hlotið leikheimild.

Merkel æfði með landsliðinu en þá kom í ljós að hann var ekki búinn að ná sér fullkomlega af meiðslum á læri.

Leikmaðurinn hefur ekki fengið leikheimild þar sem að beiðni hans um að spila með landsliði Kasakstan er ennþá í vinnslu hjá FIFA.

Merkel er 23 ára gamall leikmaður Udinese á Ítalíu en er á láni hjá Grasshopper í Sviss og hefur áður verið leikmaður Milan, Genoa og Watford eftir að hafa alist upp hjá Stuttgart.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner