Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. mars 2015 15:30
Magnús Már Einarsson
Terry missti svefn eftir tapið gegn PSG
Mynd: Getty Images
John Terry, fyrirliði Chelsea, segist ekki hafa sofið sekúndu nóttina eftir að liðið datt út gegn PSG í Meistaradeildinni fyrr í þessum mánuði.

Chelsea datt út á útivallarmörkum eftir 2-2 jafntefli í síðari leiknum gegn PSG.

,,Ég svaf ekki sekúndu alla nóttina enda hefði það verið hræðilegt ef ég hefði getað það," sagði Terry.

,,Ef ég hefði farið heima að sofa þá hefði einhver sagt við mig 'Tími þinn er kominn.' Ef þér er sama þá vantar eitthvað hjá þér."

,,Ég áttaði mig á því að það var leikur eftir þrjá til fjóra daga og maður þarf að rífa sig upp. Maður getur ekki hugsað of lengi um þetta."

Athugasemdir
banner
banner
banner