Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. mars 2015 20:42
Daníel Freyr Jónsson
Vináttulandsleikir: Falcao skorað tvö og lagði upp eitt
Falcao kom að þremur mörkum Kólumbíumanna.
Falcao kom að þremur mörkum Kólumbíumanna.
Mynd: Getty Images
Framherjinn Radamel Falcao hrökk í gang í kvöld og skoraði tvö af sex mörkum Kólumbíumanna í stórsigri liðsins á Barein í kvöld.

Falcao hefur verið eitt mesta floppið á Englandi í vetur, en hann hefur engan veginn staðið undir væntingum hjá Manchester United.

Það stöðvaði hann hinsvegar ekki í kvöld og skoraði hann tvö mörk í fyrri hálfleik, en áður hafði hann lagt upp mark fyrir Carlos Bacca.

Þrjú mörk komu svo í síðari hálfleik og má sjá markaskorarana hér fyrir neðan.

Barein 0 - 6
0-1 Carlos Bacca ('14)
0-2 Falcao ('32)
0-3 Falcao ('36)
0-4 Adrian Ramos ('59)
0-5 Johan Mojica ('79)
0-6 Andres Renteria ('82)
Athugasemdir
banner
banner
banner