Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. mars 2017 11:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Árni, Aron og Daníel Leó allir á skotskónum
Daníel Leó skoraði fyrir Álasund gegn Molde í gær
Daníel Leó skoraði fyrir Álasund gegn Molde í gær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni Vilhjálmsson, Aron Elís Þrándarson og Daníel Leó Grétarsson voru allir á skotskónum með liðum sínum í gær.

Árni skoraði fjórða mark Jönköping Södra í 5-1 sigri gegn Varnamo í æfingaleik. Mark Árna kom á 90. mínútu leiksins.

Árni gekk til liðs við Jönköping í janúar en liðið leikur í sænsku úrvalsdeildinni.

Aron Elís og Daníel Leó voru báðir á skotskónum með liði sínu Álasund er liðið fór illa með Molde.

Aron skoraði annað mark Álasund á 38. mínútu og Daníel bætti við því þriðja á 60. mínútu. Álasund vann leikinn 5-1.

Liðin eru í óða önn að undirbúa sig fyrir komandi tímabil en báðar deildirnar hefjast 1. apríl.
Athugasemdir
banner