Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. mars 2017 10:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Diego Jóhannesson með stoðsendingu í sigri
Diego átti fallega stoðsendingu í gær
Diego átti fallega stoðsendingu í gær
Mynd: Úr einkasafni
Diego Jóhannesson spilaði allan leikinn í hægri bakverði með liði sínu Real Oviedo í spænsku B-deildinni í gær.

Oviedo fékk lið Girona í heimsókn en fyrir leik liðanna var Girona í 2. sæti og Oviedo í 5. sæti.

Eftir markalausan fyrri hálfleik voru það heimamenn sem byrjuðu betur og skoraði Toche strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks.

Toche var svo aftur á ferðinni á 54. mínútu, nú eftir frábæra sendingu frá Diego.

Ekki voru fleiri mörk skoruð og komst Oviedo upp í 4. sæti deildarinnar sem er umspil um sæti í efstu deild.

Diego á einn landsleik fyrir Ísland en það var gegn Bandaríkjunum í janúar í fyrra en faðir hans er íslenskur

Myndband af sendingu Diego má sjá hér að neðan



Athugasemdir
banner
banner
banner