Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 26. mars 2017 16:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
„Guardiola hefur breytt Aguero"
Aguero er mikið betri á þessu tímabili en á því síðasta
Aguero er mikið betri á þessu tímabili en á því síðasta
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero, leikmaður Manchester CIty er að ganga í gegnum miklar breytingar á leik sínum undir stjórn Pep Guardiola, segir Uwe Rosler. fyrrum leikmaður Manchester City.

Aguero hefur stimplað sig inn á undanförnum árum sem einn allra besti framherji heims.

Aguero hefur skorað 25 mörk í öllum keppnum á þessu tímabili, þrátt fyrir að hafa lent í kuldanum hjá Guardiola á tímabili.

„Þegar þú berð saman Aguero núna og frá síðasta tímabili, þá geturu séð miklar breytingar. Hugrekki hans, hraði og vilji hans til að pressa hátt á völlinn hefur breyst. Plús það að hann skorar ennþá mörk."

„Þú getur séð að Aguero er að reyna að vinna eftir hugmyndum Guardiola. Það sem hann gerir án boltans á þess tímabili, er mikið meira en hann gerði á því síðasta,"
sagði Rosler.
Athugasemdir
banner
banner
banner