Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 26. mars 2017 21:30
Kristófer Kristjánsson
John O'Shea er ekki sáttur með Gareth Bale
Gareth Bale og John O'Shea tókust í hendur eftir leikinn á föstudaginn
Gareth Bale og John O'Shea tókust í hendur eftir leikinn á föstudaginn
Mynd: Getty Images
John O'Shea, landsliðsmaður Írlands, hefur látið Real Madrid stjörnuna Gareth Bale heyra það eftir landsleik Írlands og Wales á föstudaginn síðastliðinn.

Gareth Bale fékk gult spjald seint í leiknum fyrir ljóta tæklingu á O'Shea sem þurfti nokkur saumspor eftir atvikið.

Seamus Coleman, leikmaður Everton, fótbrotnaði einnig illa í leiknum sem lauk með 0-0 jafntefli.

John O'Shea, sem segist ekki muna hversu mörg spor þurfti að sauma í hann eftir leikinn, var ekki sérlega sáttur með Bale eftir leik.

„Í svona grannaslag býst maður við alvöru tæklingum en það verður samt að vera einhver skynsemi."

„Þegar ég sá tæklinguna aftur í endursýning varð ég frekar svekktur en sem betur fer geng ég frá þessu heill heilsu."
Athugasemdir
banner
banner