Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. mars 2017 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Luis Figo: Ég vildi fá Gerrard í Real Madrid
Gerrard fagnar marki sínu í gær.
Gerrard fagnar marki sínu í gær.
Mynd: Getty Images
Luis Figo í leiknum í gær.
Luis Figo í leiknum í gær.
Mynd: Getty Images
Luis Figo og Steven Gerrard mættust á knattspyrnuvellinum í gær þegar goðsagnir Liverpool og Real Madrid áttust við á Anfield.

Luis Figo fyrrum leikmaður Real Madrid hafði orð á því eftir leikinn að hann hafi viljað fá Gerrard til Real Madrid á sínum tíma.

Þegar Luis Figo var spurður út í hvort hann hafi viljað fá að spila með Gerrard hjá Real Madrid sagði hann. „Á því augnabliki í lífinu þegar við höfðum möguleika á því að spila saman, þá gekk það ekki upp. Mér finnst það algjör synd því allir vilja spila með þeim bestu."

„Ég held að Gerrard hafi sýnt það á ferlinum að hann var einn sá besti í sinni stöðu. Liverpool var heppið að fá að njóta krafta hans og hann er algjör stjarna hér á Anfield, sagði Figo sem tapaði 4-3 fyrir Gerrard og félögum í Liverpool.


Athugasemdir
banner
banner
banner