Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 26. mars 2017 18:30
Kristófer Kristjánsson
Þjálfari Litháen: Ísland er okkur innblástur
Edgaras Jankauskas er þjálfari Litháen
Edgaras Jankauskas er þjálfari Litháen
Mynd: Getty Images
Edgaras Jankauskas, þjálfari Litháen, segir að afrek Íslands á EM í Frakklandi í fyrra geti verið honum og hans mönnum hvatning fyrir komandi átök.

Þetta sagði hann fyrir leik Litháen á Wembley í dag gegn Englendingum en, eins og allir muna, vann Ísland mjög eftirminnilegan sigur gegn Englandi á EM í fyrra.

„Ísland er frábært fordæmi fyrir okkur en það verður erfitt," sagði Jankauskas fyrir leikinn en allt kom þó fyrir ekki; England vann leikinn 2-0 með mörkum Jermaine Defoe og Jamie Vardy.

Litháen er í 107. sæti á heimslista FIFA, 93 sætum fyrir neðan England.
Athugasemdir
banner
banner