Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. apríl 2015 11:15
Jóhann Ingi Hafþórsson
Aaron Lennon grunaður um að hafa ráðist á 18 ára stelpu
Aaron Lennon í leik með Everton.
Aaron Lennon í leik með Everton.
Mynd: Getty Images
Lögreglan í Manchester eru að rannsaka mál Aaron Lennon en þessi vængmaður Everton sem er á láni frá Tottenham, er grunaður um að hafa ráðist á stelpu á næturklúbbi í Manchester.

Hinn 28 ára gamli Lennon hefur verið yfirheyrður af lögreglunni en atvikið átti sér stað 5.apríl á þessu ári.

Lennon er talinn hafa boðist til að tala við lögregluna sjálfur.

Talsmaður lögreglunnar í Manchester hefur staðfest að ráðist var á 18 ára gamla stelpu en enginn hefur verið handtekinn.

Lennon er á lánssamning hjá Everton en hann komst ekki í lið Mauricio Pochettino hjá Tottenham.

Athugasemdir
banner