Jón Guðni Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson spiluðu báðir í 2-0 tapi Sundsvall gegn Djurgarden í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Jón Guðni spilaði allan leikinn á meðan Rúnar Már kom inná sem varamaður á 26.mínútu.
Omar Colley og Nyasha Mushekwi skoruðu mörk Djurgarden.
Eftir fimm leiki er Sundsvall með sjö stig, en þeir hafa unnið tvo leiki, gert eitt jafntefli og tapað tveim.
Athugasemdir