sun 26. apríl 2015 17:54
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Arsenal virðist ánægt með annað sætið
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi, vildi eins og gefur að skilja ólmur fá þrjú stig gegn Arsenal í dag en leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Arsenal og Chelsea gerðu 0-0 jafntefli á Emirates leikvanginum í dag en Chelsea var sterkara liðið á meðan Arsenal virtist afar ánægt með stigið.

„Við vildum vinna og við reyndum það en þessi leikur var samt sem áður erfiður og gegn erfiðu liði," sagði Mourinho.

„Arsenal er gott lið og það var ekki möguleiki á að vinna þennan leik. Við vorum með plan fyrir þennan leik og mér fannst við vera hættulegir þrátt fyrir að Arsenal hafi brotið oft á okkur í skyndisóknunum."

„Við vitum að við þurfum fimm stig (þurfa í raun og veru sex stig) til þess að lyfta titlinum svo við erum ekki mikið að taka sénsa undir lok leiks en Arsenal tók Giroud af velli undir lokin svo Arsenal virðist ánægt með 2. sæti og stigið,"
sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner