Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. apríl 2015 16:06
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Fjórða mark Viðars í sjö leikjum
Viðar Örn byrjar vel í Kína.
Viðar Örn byrjar vel í Kína.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum þegar lið hans Jiangsu Guoxin-Sainty gerði jafntefli við Guangzhou Evergrande í kínversku úrvalsdeildinni í dag.

Guangzhou Evergrande er eitt stærsta félagið í Kína og er í 2. sæti deildarinnar eftir umferð helgarinnar, en Viðar Örn kom Jiangsu í 3-2 á 84. mínútu.

Selfyssingurinn kom inn á sem varamaður fyrir samlanda sinn Sölva geir Ottesen í leiknum, en hann hafði glímt við smávægileg meiðsli í vikunni. Var hann ekki lengi að setja mark sitt á leikinn, en hins vegar jafnaði lið Guangzhou metin alveg í blálokin.

Smelltu hér til að sjá myndband af marki Viðars, en það kemur eftir tæpar fimm mínútur. Íslenski landsliðsmaðurinn hefur byrjað tímabilið í Kína mjög vel og er með fjögur mörk í sjö leikjum. Einungis tveir leikmenn hafa skorað fleiri mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner