sun 26. apríl 2015 19:52
Brynjar Ingi Erluson
Noregur: Finnur og Árni spiluðu í tapi
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Rúnar Kristinsson og lærisveinar hans í Lilleström töpuðu fyrir Stabæk, 0-2, í norsku deildinni í dag.

Finnur Orri Margeirsson var í byrjunarliði Lilleström gegn Stabæk í dag en honum var skipt af velli undir lok leiksins.

Árni Vilhjálmsson kom þá inná sem varamaður þegar um það bil hálftími var eftir af leiknum.

Lilleström er í þrettánda sæti deildarinnar með 2 stig eftir fyrstu fjóra leiki deildarinnar en liðið byrjaði með eitt stig í mínus.
Athugasemdir
banner
banner