Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 26. apríl 2015 06:40
Arnar Geir Halldórsson
Útsendarar Tottenham fylgdust með Thauvin
Florian Thauvin
Florian Thauvin
Mynd: Getty Images
Útsendarar á vegum Tottenham sáust fylgjast með leik Marseille og Lorient í frönsku úrvalsdeildinni síðastliðið föstudagskvöld.

Öruggt er talið að þeir hafi verið að fylgjast með Florian Thauvin, 22 ára kantmanni Marseille.

Thauvin hefur verið orðaður við Tottenham, Arsenal og Chelsea í vetur en talið er líklegt að Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, muni reyna að fá kappann á White Hart Lane í sumar.

Þrátt fyrir að eiga þrjú ár eftir af samningi sínum við Marseille er talið að liðið sé tilbúið að selja hann í sumar en Marseille borgaði 13 milljónir evra fyrir Thauvin árið 2013.

Thauvin hefur verið fastamaður hjá Marseille í vetur. Hann er kominn með fimm mörk og hefur að auki lagt upp fjögur.

Athugasemdir
banner
banner