Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. apríl 2016 10:17
Magnús Már Einarsson
Alfreð í góðum félagsskap í úrvalsliði umferðarinnar
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason, framherji Augsburg, er í liði 31. umferðar í þýsku Bundesligunni.

Arturo Vidal hjá FC Bayern og Henrikh Mkhitaryan, leikmaður Dortmund, eru á meðal leikmanna sem eru einnig í úrvalsliðinu að þessu sinni.

Alfreð skoraði fljótasta mark í sögu Augsburg þegar liðið lagði Wolfsburg 2-0 um helgina en markið kom á fyrstu mínútu.

Samtals er Alfreð kominn með sex mörk í þýsku Bundesligunni síðan hann kom til Augsburg í janúar glugganum.

Hér að neðan má sjá lið umferðarinnar í Þýskalandi.



Athugasemdir
banner