Haukar hafa fengið kantmanninn Hauk Ásberg Hilmarsson á láni frá Val.
Haukur Ásberg hefur æft með Haukum undanfarið og hann hefur nú fengið félagaskipti.
Haukur Ásberg hefur æft með Haukum undanfarið og hann hefur nú fengið félagaskipti.
Hinn tvítugi Haukur skoraði eitt mark í átta leikjum í Pepsi-deildinni með Val í fyrra.
Haukar hafa verið rólegir á leikmannamarkaðinum í vetur og Haukur er einungis annar nýi leikmaðurinn sem kemur á Ásvelli. Auk Hauks kom Elton Renato Livramento Barros til Hauka frá Selfossi.
Haukar mæta Grindavík í 1. umferð í Inkasso-deildinni á föstudaginn í næstu viku.
Athugasemdir