Varnarmaðurinn Haukur Lárusson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram en þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.
Haukur er 29 ára miðvörður sem kemur frá Fjölni.
Haukur er 29 ára miðvörður sem kemur frá Fjölni.
Haukur hefur leikið fyrir meistaraflokk Fjölnis síðan 2005 en lék lítið síðasta sumar vegna meiðsla.
Framarar höfnuðu í níunda sæti 1. deildarinnar fyrra en Ásmundur Arnarsson tók síðan við þjálfun liðsins. Ásmundur þekkir Hauk vel frá því að hann þjálfarði Fjölni.
Fram mætir KA á Akureyri í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar laugardaginn 7. maí.
Athugasemdir