Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. apríl 2016 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Milan reyndi haka dansinn fyrir leik
Mynd: Getty Images
AC Milan varð aðhlátursefni víða um heim fyrir að reyna haka dansinn sem nýsjálenska landsliðið í ruðningi gerði frægan á sínum tíma.

Milan gerði dansinn fyrir heimaleik gegn nýliðum Carpi sem eru í bullandi fallbaráttu.

Dansinn hefur þó ekki virkað eins og ætlast var því leiknum lauk með markalausu jafntefli og bauluðu stuðningsmenn Milan á sína menn að leikslokum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband af haka dansi Milan sem er í besta falli vandræðalegur. Þar fyrir neðan er svo hægt að sjá hvernig á að framkvæma alvöru haka dans.




Athugasemdir
banner
banner
banner