Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 26. maí 2013 09:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Sport.is 
Brynjar Björn lærir að verða flugmaður
Í löngu viðtali við Sport.is
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður KR, gæti orðið flugmaður eftir að ferlinum lýkur. Þetta kemur fram í löngu viðtali við hann sem birt er á Sport.is og hægt er að horfa á hér að neðan.

„Já alveg eins. Ég er að velta þessu fyrir mér. Ég er að taka einkaflugmannspróf. Það er fyrsta skrefið og svo ætla ég að sjá hvernig gengur. Þetta er hrikalega skemmtilegt sem stendur," sagði Brynjar sem gæti líka farið út í þjálfun.

„Þetta á eftir að koma í ljós þegar maður hættir að spila. Ég er líka búinn með nokkur þjálfarastig og hyggst klára A-þjálfaraprófið í vetur. Eins og er þá held ég öllum möguleikum opnum,"

Brynjar á langan og farsælan feril að baki, leikið í atvinnumennsku á Englandi og í Skandinavíu. Í viðtalinu segist hann telja sig eiga tvö ár eftir af ferlinum og mun hann klára hann hjá KR.

Brynjar í viðtali við Sport.is

Slapp
banner