Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 26. maí 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Ferill David Beckham formlega á enda
Knattspyrnuferill David Beckham er formlega á enda því hann var ekki valinn í leikmannahópinn hjá Paris St. Germain sem mætir Lorient í lokaumferð frönsku deildarinnar í dag.

Beckham felldi tár þegar hann gekk af velli í síðasta sinn í heimaleiknum gegn Brest um síðustu helgi en hann hafði þá áður tilkynnt að hann væri að leggja skóna á hilluna.

Hann er 38 ára gamall og spilaði í 20 ár með Manchester United, Real Madrid, Los Angeles Galaxy, AC Milan og PSG auk enska landsliðsins.

Hann kom til PSG í janúar og gerði þá fimm mánaða samning og gekk úr skugga um að öll launin sem hann fengju rynnu til góðgerðarmála. Hann spilaði 14 leiki þar og varð Frakklandsmeistari með liðinu.
Slapp