Heimild: Soccerway
Jupp Heynckes gerði Bayern Munchen að Evrópumeisturum í gærkvöldi en fyrr á árinu varð ljóst að félagið vildi ekki framlengja við hann samningnum því Pep Guardola tekur við liðinu í sumar.
Upphaflega var talið að Heynckes ætlaði sér að hætta afskiptum af fótbolta eftir að hafa stýrt sínum síðasta leik með Bayern en eftir úrslitaleikinn á Wembley í gær gaf hann annað í skyn.
,,Ákvörðunin um hvað ég geri eftir bikarleikinn var tekin í júní í fyrra. Að hætta? Nei, þið komist að því eftir bikarúrslitaleikinn (gegn Stuttgart næsta laugardag)," sagði Heynckes við fréttamenn eftir leikinn í gær.
Takist Bayern að vinna leikinn um næstu helgi er ljóst að liðið nær sögulegri þrennu því þeir hafa þegar unnið þýsku deildina.

